Markmið og tilgangur
Markmið Lífsvirðingar er að stuðla að uppbyggilegri umræðu og fræðslu um rétt fólks til að deyja á eigin forsendum.
Tilgangur félagsins er:
-
- að stuðla að opinni, málefnalegri og víðtækri umræðu um dánaraðstoð. Félagið leggur áherslu á að einstaklingur hafi yfirráð yfir líkama sínum, lífi og dauða.
- að vinna að því að samþykkt verði löggjöf um það við vissar, vel skilgreindar aðstæður, og að uppfylltum ströngum skilyrðum, verði dánaraðstoð mannúðlegur valkostur fyrir þá sem kjósa að deyja á eigin forsendum. Félagið telur að dánaraðstoð með skýrum skilyrðum teljist til mannréttinda.
- að standa fyrir upplýsingagjöf, fundum og ráðstefnum um dánaraðstoð og vera í góðum tengslum við sambærileg félög erlendis.
![Image](/images/2023/09/08/empty-road-2022-12-16-22-02-00-utc-1.jpg)